Þurfa að sýna bæði vilja og gæði

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal.
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal. AFP/Justin Tallis

Nú stend­ur yfir leik­ur Ipswich og Arsenal í ensku úr­vals­deild­inni þar sem gest­irn­ir leiða með tveim­ur mörk­um.

Í aðdrag­anda leiks­ins var Mikel Arteta, knatt­spyrn­u­stjóri Arsenal, spurður út í þær breyt­ing­ar sem hann gerði á byrj­un­arliði sínu frá síðasta leik, sigr­in­um á Real Madrid í Meist­ara­deild­inni á miðviku­dag.

Sagði hann mis­jafn­ar ástæður fyr­ir breyt­ing­un­um. Sum­ir leik­menn gátu ekki byrjað því stutt hafi verið á milli leikja.

Nægi­lega sterkt lið

„Við höf­um greint stöðuna vel með læknaliði okk­ar og still­um upp nægi­lega sterku liði til að vinna leik­inn.“

Arteta sagði næstu leiki liðsins í deild­inni virki­lega mik­il­væga.

„Nú þurf­um við að ein­beita okk­ur að deild­inni. Þar þurf­um við að sýna stöðug­leika, vilja og gæði.

Frammistaðan hef­ur oft verið góð en úr­slit­in hafa ekki alltaf fallið með okk­ur en það er bara enska úr­vals­deild­in. Leik­ur­inn í dag verður erfiður einnig, sagði Arteta.

„Þetta Ipswich-lið spil­ar vel og hef­ur gert mörg­um liðum erfitt fyr­ir. Þeir eru vel skipu­lagðir og mjög vel þjálfaðir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert