Áfram líklegt að markvörðurinn yfirgefi Manchester

Ederson hefur varið mark Manchester City í átta ár.
Ederson hefur varið mark Manchester City í átta ár. AFP/Oli Scarff

Bras­il­íumaður­inn Eder­son, markvörður enska knatt­spyrnuliðsins Manchester City, gæti vel farið frá fé­lag­inu í sum­ar. 

Fé­laga­skipta­sér­fræðing­ur­inn Fabrizio Romano seg­ir frá en Eder­son var orðaður frá City síðasta sum­ar en endaði á því að vera áfram. 

Fé­lög í Sádi-Ar­ab­íu voru þá sögð hafa áhuga á hon­um og er það enn staðan sam­kvæmt Romano. 

Eder­son gekk í raðir Manchester City sum­arið 2017 og hef­ur síðan sex sinn­um orðið Eng­lands­meist­ari og einu sinni Evr­ópu­meist­ari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert