Spánverjinn Rodri, sem vann gullboltann árið 2024, er farinn að æfa á fullu á nýjan leik með knattspyrnuliði Manchester City.
Rodri sleit krossband gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í september á síðasta ári og hefur verið frá síðan.
Hann er hins vegar farinn að æfa á fullu en félagið mun sjá til þess að hann fari varlega af stað og því ekki ljóst hvenær hann spilar sinn fyrsta leik eftir meiðslin.
Manchester City mætir Crystal Palace í úrslitaleik bikarsins þann 17. maí en samkvæmt SkySports er ólíklegt að Rodri taki þátt í þeim leik. Það væri frekar í heimsmeistarakeppni félagsliða í sumar.
Rodri hefur verið gífurlega mikilvægur hlekkur í liði City undanfarin ár. Þá hafa hans meiðsli sett stórt strik í reikninginn á nokkuð lélegu tímabili liðsins sem varð Englandsmeistari í fyrra.