Trans konur mega ekki lengur spila í kvennaflokki í knattspyrnu á Englandi frá og með 1. júní næstkomandi.
Frá þessu greinir enska knattspyrnusambandið en þann 11. apríl síðastliðinn breytti sambandið reglum sínum fyrir trans konur. Þá máttu þær trans konur sem uppfylla ákveðin skilyrði varðandi testósterónmagn og læknisfræðilega meðferð halda áfram að spila.
Nokkrum dögum eftir það komst hæstiréttur Bretlands að þeirri niðurstöðu að hugtökin „kona“ og „kyn“ í jafnréttislögunum frá 2010 vísuðu til líffræðilegs kyns við fæðingu.
Þessi niðurstaða hafði í för með sér lagalega óvissu fyrir íþróttasamtök varðandi túlkun á kynbundinni þátttöku, og knattspyrnusambandið brást við með því að breyta reglum sínum til að samræmast dómnum.
Eftir það breytti enska knattspyrnusambandið aftur reglum sínum og mega nú trans konur ekki spila í kvennaflokki.