Jafnar sig á samföllnu lunga

Jorginho á æfingu hjá Arsenal.
Jorginho á æfingu hjá Arsenal. AFP/Adrian Dennis

Ítalski knatt­spyrnumaður­inn Jorg­in­ho, miðjumaður Arsenal, gæti snúið aft­ur áður en tíma­bilið er á enda. Hann jafn­ar sig nú á sam­föllnu lunga.

Jorg­in­ho meidd­ist í jafn­tefli gegn Brent­ford í ensku úr­vals­deild­inni þann 12. apríl eft­ir að hafa fengið högg í bring­una.

„Þetta reynd­ist aðeins flókn­ara en við héld­um. Það er í lagi með hann. End­ur­hæf­ing­in hjá hon­um geng­ur vel.

Ég held að hann geti spilað aft­ur á tíma­bil­inu ef allt fer sam­kvæmt áætl­un næstu viku eða svo,“ sagði Mikel Arteta, knatt­spyrn­u­stjóri Arsenal, á frétta­manna­fundi í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert