Þýski knattspyrnumaðurinn Kai Havertz gæti náð síðustu leikjum enska liðsins Arsenal á tímabilinu.
Havertz meiddist aftan í læri í febrúar og var búist við að tímabilið væri búið hjá þýska sóknarmanninum.
Bati leikmannsins hefur gengið vonum framar og gæti hann náð lokaumferðum ensku úrvalsdeildarinnar og úrslitum Meistaradeildarinnar, komist enska liðið þangað.
Gabriel Jesus, Gabriel Magalhães og Takehiro Tomiyasu spila hins vegar ekkert meira á tímabilinu vegna meiðsla.