This is a modal window.
Beginning of dialog window. Escape will cancel and close the window.
End of dialog window.
Arsenal tapaði fyrir Bournemouth, 2:1, í 35. umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í dag.
Arsenal komst yfir í fyrri hálfleik þökk sé Declan Rice en mörk frá Dean Huijsen og Evanilson í seinni hálfleik tryggðu Bournemouth sigurinn. Varnarleikur Arsenal var sérstaklega klaufalegur í seinna markinu.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.