Arteta: Ætlum að nýta okkur reiðina

Mikel Arteta er knattspyrnustjóri karlaliðs Arsenal.
Mikel Arteta er knattspyrnustjóri karlaliðs Arsenal. AFP/Glyn Kirk

Mikel Arteta, knatt­spyrn­u­stjóri karlaliðs Arsenal, seg­ir að lið sitt ætli að nýta sér reiðina eft­ir tapið fyr­ir Bour­nemouth, 2:1, á heima­velli í ensku úr­vals­deild­inni í gær. 

Arsenal mæt­ir Par­ís SG í seinni leik liðanna í undanúr­slit­um Meist­ara­deild­ar­inn­ar í Par­ís­ar­borg næsta miðviku­dag. Par­ís SG vann fyrri leik­inn 1:0 og er því verk að vinna fyr­ir Arsenal. 

„Þetta er ekki það sem við vild­um fyr­ir þenn­an leik. Þetta tap skapaði mikla reiði, gremju og von­brigði. 

Við skul­um nýta okk­ur þetta allt á miðviku­dag­inn, við verðum að gera það,“ sagði Arteta í viðtali eft­ir leik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert