Arsenal fékk góðar fréttir fyrir stórleikinn

Riccardo Calfiori er orðinn heill heilsu.
Riccardo Calfiori er orðinn heill heilsu. AFP/Marco Bertorello

Ítal­inn Riccar­do Calafi­ori er mætt­ur aft­ur til æf­inga hjá Arsenal fyr­ir seinni leik liðsins gegn Par­ís SG í undanúr­slit­um Meist­ara­deild­ar Evr­ópu í knatt­spyrnu í Par­ís­ar­borg annað kvöld. 

Calafi­ori hef­ur verið frá í dágóðan tíma en hann æfði með liðinu í dag. 

Jurriën Timber æfði þá líka en hann var ekki með liðinu í 2:1-tapi fyr­ir Bour­nemouth í ensku úr­vals­deild­inni á laug­ar­dag­inn var. 

Leik­menn­irn­ir verða því vænt­an­lega báðir í leik­manna­hópi Arsenal annað kvöld en Par­ís SG er með 1:0-for­ystu eft­ir fyrri leik­inn í London. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert