Leikmaður Liverpool þurfti að leiðrétta sig

Ibrahima Konaté.
Ibrahima Konaté. AFP/Paul Ellis

Ibra­hima Konaté, leikmaður Eng­lands­meist­ara Li­verpool í knatt­spyrnu, þurfti að leiðrétta sig eft­ir um­mæli sem hann lét fjalla á In­sta­gram-síðu liðsfé­laga síns Trents Al­ex­and­ers-Arnolds.

Al­ex­and­er-Arnold, sem er upp­al­inn hjá Li­verpool og vara­fyr­irliði liðsins, sagði frá því að hann væri á för­um frá fé­lag­inu þegar samn­ing­ur hans renn­ur út í sum­ar. Mun hann þá ganga til liðs við spænska stór­veldið Real Madrid. 

Liðsfé­lag­ar hans hjá Li­verpool sýndu hon­um al­mennt stuðning en Konaté skrifaði þrjú rauð hjörtu og „Big L“ und­ir færslu Al­ex­and­ers-Arnolds. 

„Big L“ á oft við „loss“ eða tap og ályktuðu sum­ir að Konaté væri að skjóta á Al­ex­and­er-Arnold. Hins veg­ar leiðrétti hann sig stuttu seinna og sagði „le­g­end of cour­se,“ eða „ég meina goðsögn, að sjálf­sögðu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert