Tíundi til að vera rekinn á fimm árum

Tom Cleverley á hliðarlínunni.
Tom Cleverley á hliðarlínunni. Ljósmynd/Watford

Tom Cleverley hef­ur verið rek­inn sem stjóri karlaliðs Wat­ford á Englandi. 

Wat­ford hafnaði í 14. sæti ensku B-deild­ar­inn­ar á tíma­bil­inu og vann aðeins fimm leiki á ár­inu. 

Cleverley tók við sem bráðabirgðastjóri í mars í fyrra en fékk síðan starfið eft­ir góðan ár­ang­ur. Hann var þá leikmaður liðsins í sex ár áður en hann fór að starfa í teymi þess. 

Cleverley kom í gegn­um aka­demíu Manchester United og lék yfir 70 leiki fyr­ir fé­lagið og 13 lands­leiki fyr­ir Eng­land. 

Cleverley er tí­undi stjór­inn til að vera rek­inn á fimm árum hjá Wat­ford en hann náði að stýra liðinu í 59 leikj­um, sem er meira en tíu síðustu stjór­ar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert