Sóknarmaðurinn Bryan Mbeumo er væntanlega á förum frá enska knattspyrnufélaginu Brentford eftir tímabilið. Mbeumo hefur slegið í gegn á leiktíðinni og skorað 18 mörk í ensku úrvalsdeildinni.
Hann er ekki eini sóknarmaður Brentford sem gæti farið í annað félag, því Yoane Wissa, sem einnig hefur skorað 18 mörk í deildinni, er sömuleiðis eftirsóttur.
„Bryan fer líklega,“ sagði Christian Nörgaard, fyrirliði Brentford, í samtali við Sky Sports. „Ég veit ekki með Wissa en vonandi náum við að halda honum.
Ég er mjög ánægður fyrir hönd þeirra beggja. Þeir eiga alla þessa velgengni skilið,“ bætti Nörgaard við.