Haaland klár í slaginn

Erling Haaland .
Erling Haaland . AFP/Oli Scarff

Norðmaður­inn Erl­ing Haaland er klár í slag­inn fyr­ir úti­leik Manchester City gegn Sout­hampt­on í ensku úr­vals­deild­inni í fót­bolta á morg­un. 

Haaland hef­ur verið frá í meira en mánuð eft­ir að hafa meiðst í átta liða úr­slit­um enska bik­ars­ins gegn Bour­nemouth í lok mars. 

Hann var á bekkn­um hjá City í síðasta leik gegn Wol­ves en kom ekki inn á völl­inn. Pep Guar­di­ola býst þó við að hann spili á morg­un, en hvort hann verður í byrj­un­arliðinu er óvíst. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert