Ekki versta liðið í sögu deildarinnar

James McAtee og Jan Bednarek í baráttunni í dag.
James McAtee og Jan Bednarek í baráttunni í dag. AFP/Glyn Kirk

Sout­hampt­on náði í mik­il­vægt stig gegn Manchester City er liðin gerðu marka­laust jafn­tefli í ensku úr­vals­deild­inni í dag.

Stigið þýðir að Sout­hampt­on er ekki versta lið í sögu ensku úr­vals­deild­ar­inn­ar en liðið er nú með 12 stig á botn­in­um.

Der­by County er því enn með lægsta stiga­fjölda í sögu deild­ar­inn­ar en liðið endaði með aðeins 11 stig tíma­bilið 2007 til 2008. 

Manchester City er í þriðja sæti með 65 stig.

Fjör­ug­ur leik­ur í Lund­ún­um

Evert­on gerði góða ferð til Lund­úna er liðið lagði Ful­ham, 3:1, í dag.

Raul Jimé­nez kom heima­mönn­um yfir á 17. mín­útu. Vitaliy My­ko­len­ko jafnaði met­in í upp­bót­ar­tíma fyrri hálfleiks og var staðan því 1:1 í leik­hléi.

Michael Kea­ne kom Evert­on yfir á 70. mín­útu og Beto inn­siglaði síðan sig­ur­inn með þriðja marki liðsins aðeins þrem­ur mín­út­um síðar.

Ful­ham er í 11. sæti deild­ar­inn­ar með 51 stig en Evert­on er í 13. sæti með 42 stig. 

Góðir útisigr­ar

Brent­ford vann 1:0-sig­ur gegn Ipswich á Portman Road í dag. Þjóðverj­inn Kevin Schade skoraði sig­ur­markið á 18. mín­útu leiks­ins.

Brent­ford sit­ur í átt­unda sæti með 55 stig. Ipswich er í 18. sæti með 22 stig en liðið er nú þegar fallið.

Að lok­um vann Bright­on góðan útisig­ur gegn Wol­ves, 2:0.

Danny Wel­beck kom Bright­on yfir á 28. mín­útu með marki úr víta­spyrnu. Á 85. mín­útu gerði Braj­an Gruda út um leik­inn.

Bright­on er í ní­unda sæti deild­ar­inn­ar með 55 stig en Wol­ves sit­ur í 14. sæti með 41 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert