Mikilvægur sigur í Meistaradeildarbaráttunni

Ollie Watkins og Jacob Ramsey fagna marki fyrrnefnda.
Ollie Watkins og Jacob Ramsey fagna marki fyrrnefnda. AFP

Ast­on Villa vann mik­il­væg­an sig­ur gegn Bour­nemouth, 1:0, í ensku úr­vals­deild karla í knatt­spyrnu í kvöld.

Úrslit­in þýða að Ast­on Villa er með 63 stig í sjötta sæti, jafn­mörg stig og Newcastle og Chel­sea í fjórða og fimmta sæti sem veita sæti í Meist­ara­deild­inni. Bour­nemouth er í tí­unda sæti með 53 stig

Ollie Watkins skoraði sig­ur­markið í upp­bót­ar­tíma fyrri hálfleiks. Ast­on Villa missti mann af velli á 80. mín­útu þegar Jacob Rams­ey fékk rautt spjald. Þrátt fyr­ir það hélt liðið út og vann góðan 1:0-sig­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert