Englandsmeistarar Liverpool og Arsenal skildu jöfn, 2:2, á Anfield-vellinum í skemmtilegum leik í Liverpool-borg í 36. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.
Leikurinn byrjaði fjörlega og bar þess merki að lítið væri undir. Liverpool hafði fyrir tveimur umferðum síðan tryggt sér titilinn og Arsenal-liðið er svo gott sem öruggt með sæti í Meistaradeildinni að ári.
Bukayo Saka fékk fyrsta færi leiksins eftir að rangstöðugildra Liverpool klikkaði í aukaspyrnu utan af velli. Saka fékk boltann aleinn í teignum en hitti hann illa og setti hann framhjá markinu. Skömmu síðar fékk Luis Díaz kjörið tækifæri til að koma Liverpool yfir eftir undirbúning Mohamed Salah en skot hans úr miðjum teigum fór beint á David Raya sem varði vel.
Fyrsta markið kom svo á 20. mínútu. Curtis Jones var þá fljótur að hugsa eftir að William Saliba hafði hreinsað í innkast en Jones kastaði boltanum snöggt á Andy Robertson sem var í góðu hlaupi upp vinstri kantinn. Skotinn smellti boltanum fyrir markið þar sem Cody Gakpo var mættur á nærsvæðið, stangaði boltann í netið af stuttu færi og kom heimamönnum yfir.
Einungis mínútu síðar var staðan svo orðin 2:0. Salah átti þá frábæra sendingu í gegnum vörn Arsenal í hlaupaleiðina hjá Dominik Szoboszlai. Hann var kominn einn gegn Raya en ákvað að renna boltanum þvert fyrir markið þar sem Díaz var í frábæru hlaupi og renndi boltanum í opið markið.
Eftir annað markið róaðist leikurinn töluvert og leiddi Liverpool því með tveimur mörkum í hálfleik. Jones átti gott skot rétt utan teigs sem Raya varði vel en fyrir utan það gerðist fátt markvert fram að hálfleiknum.
Seinni hálfleikurinn var ekki nema tæplega tveggja mínútna gamall þegar Arsenal minnkaði muninn. Martin Ödegaard færði boltann þá út til vinstri á Leandro Trossard sem fann Gabriel Martinelli í teignum með frábærri fyrirgjöf. Martinelli gerði mjög vel og sneiddi boltann fallega í fjærhornið.
Arsenal var töluvert betra liðið í seinni hálfleik og sótti duglega án þess að ógna neitt rosalega. Alisson varði skot frá Ben White og Martinelli úr teignum nokkuð auðveldlega sem og skot frá Bukayo Saka utan teigs.
Á 70. mínútu kom hins vegar jöfnunarmarkið. Martin Ödegaard átti þá hörkuskot utan teigs sem Alisson varði stórkostlega í stöngina og út. Þar var Mikel Merino fyrstur að átta sig og skallaði boltann í netið af stuttu færi, varnarmenn Liverpool sofandi en Merino fékk að skalla boltann algjörlega einn á auðum sjó.
Markaskorarinn Merino fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt á 78. mínútu. Hann braut þá bæði á Darwin Núnez og síðan Szoboszlai eftir að leikurinn hélt áfram, og gat Anthony Taylor ekkert annað gert en að vísa Merino af velli.
Andy Robertson fékk kjörið tækifæri til að koma Liverpool yfir á 89. mínútu en hann fékk boltann þá aleinn á fjærsvæðinu eftir að Jakub Kiwior hafði skallað fyrirgjöf Salah upp í loftið. Robertson reyndi innanfótarskot á lofti en hitti ekki markið.
Engu mátti muna að gestirnir stælu sigrinum í uppbótartíma þegar Ödegaard átti skot hárfínt framhjá stönginni eftir mistök í öftustu línu heimamanna. Á fimmtu mínútu uppbótartímans fengu heimamenn svo hornspyrnu en eftir hana átti Virgil van Dijk fastan skalla af stuttu færi sem Raya varði frábærlega. Robertson setti frákastið svo í netið en það mark stóð réttilega ekki.
Jafntefli því niðurstaðan í þessu uppgjöri toppliðanna. Úrslitin breyta litlu sem engu, Liverpool er Englandsmeistari og Arsenal er í 2. sæti, tveimur stigum á undan Newcastle sem er í því þriðja.