Enn eitt tap United

Tomas Soucek fagnar eftir að hafa komið West Ham yfir …
Tomas Soucek fagnar eftir að hafa komið West Ham yfir gegn Manchester United á Old Trafford í dag. AFP/Oli Scarff

West Ham gerði góða ferð til Manchester er liðið lagði Manchester United, 2:0, í ensku úr­vals­deild karla í knatt­spyrnu í dag. 

Með sigr­in­um fer West Ham upp fyr­ir Manchester United í 15. sæti með 40 stig en United er í 16. sæti með 39 stig.

Það voru United-menn sem fóru bet­ur af stað, voru meira með bolt­ann og komust í álit­leg­ar stöður á upp­haf­smín­út­un­um. Amad Diallo átti góða til­raun sem Areola varði vel. Bolt­inn datt í kjöl­farið fyr­ir Bruno sem hamraði hon­um yfir markið. 

Tom­as Soucek kom West Ham yfir á 26. mín­útu. Mohammed Kudus kom með fasta send­ingu fyr­ir markið á Soucek á fjær­stöng­inni sem skoraði af stuttu færi, 1:0. 

Staðan í hálfleik var 1:0, West Ham í vil. 

Á 57. mín­útu tvö­faldaði Jarrod Bowen for­ystu West Ham. Gamli United-maður­inn Aaron Wan-Bissaka renndi bolt­an­um fyr­ir markið á Bowen sem skoraði auðveld­lega. 

Skömmu síðar fékk varamaður­inn Al­ej­andro Garnacho gott færi til að minnka mun­inn eft­ir fyr­ir­gjöf frá Bruno Fern­and­es en skot hans endaði í hliðarnet­inu.

Danski fram­herj­inn Rasmus Höj­lund fékk tvö góð færi til að koma United inn í leik­inn. Fyrst lagði Amad Diallo bolt­ann á Höj­lund sem var einn á móti mark­manni en Areola sá við hon­um. Stuttu síðar skallaði Maguire bolt­ann fyr­ir Höj­lund í markteign­um sem náði aft­ur ekki að koma bolt­an­um fram­hjá Areola.  

Þrátt fyr­ir stífa sókn United-manna tókst þeim ekki að skora og West Ham fór með 2:0-sig­ur af hólmi. 

Man. United 0:2 West Ham opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert