Danny Murphy, fyrrverandi knattspyrnumaður og núverandi sparkspekingur hjá breska ríkisútvarpinu, kveðst vera orðinn þreyttur á því að hlusta á Rúben Amorim, knattspyrnustjóra Manchester United, sökum þess hversu neikvæður hann er.
Man. United hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og er í 16. sæti í ensku úrvalsdeildinni þegar aðeins tveimur umferðum er ólokið. Amorim hefur ekki farið í grafgötur með það í viðtölum að honum finnist lið sitt ekki nægilega gott.
„Ég verð stundum svolítið ráðvilltur þegar kemur að viðtölum við Amorim vegna þess hversu mikil neikvæðnin er hjá honum.
Ég er ekki mikill aðdáandi þess þegar knattspyrnustjóri talar stöðugt með neikvæðum hætti um hversu slæmir hlutirnir eru.
Hvernig þeir séu með versta liðið, versta United liðið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og svo framvegis. Mér þætti gott að heyra aðeins lausnamiðaðri svör, meiri jákvæðni og hugsanir fram í tímann,“ sagði Murphy í sjónvarpsþættinum Match of the Day.