This is a modal window.
Beginning of dialog window. Escape will cancel and close the window.
End of dialog window.
Í Vellinum á Símanum Sport á sunnudag var rætt um óvænt jafntefli botnliðs Southampton og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um liðna helgi.
„Það er eitthvað mikið að. Það er eitthvað skrítið. Vonandi kemur önnur Amazon-sería um þá þar sem við fáum svarið. Þetta er bara eins og Space Jam, það er búið að taka kraftinn úr þeim.
Það er eins og þeir kunni ekki að spila fótbolta. Þeir eru búnir að vinna nokkra leiki í röð og svo kemur Southampton og þeir geta ekki unnið,“ sagði Vilhjálmur Freyr Hallsson.
Umræðu hans, Eiðs Smára Guðjohnsen og þáttastjórnandans Harðar Magnússonar um Man. City má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.