Goodison Park verður ekki rifinn

Goodison Park úr lofti.
Goodison Park úr lofti. AFP/Paul Ellis

Kvennalið enska knatt­spyrnu­fé­lags­ins Evert­on mun fram­veg­is spila á Good­i­son Park leik­vang­in­um í Li­verpool eft­ir að fé­lagið tók ákvörðun um að rífa leik­vang­inn ekki.

Karlaliðið flyt­ur á glæ­nýj­an leik­vang við Bramley-Moore bryggj­una að yf­ir­stand­andi tíma­bili loknu og voru uppi áform um að rífa hinn sögu­fræga Good­i­son Park, sem er 132 ára gam­all, af þeim sök­um.

Banda­rísk­ir eig­end­ur Evert­on, Fried­kin Group, ákváðu að gera hag­kvæmn­is­könn­un um kosti þess og galla að rífa leik­vang­inn.

Niðurstaðan var sú að hag­kvæm­ast væri að halda áfram rekstri leik­vangs­ins og flytja kvennaliðið al­farið á Good­i­son Park.

Bæði karla- og kvennalið Evert­on leika í efstu deild­um Eng­lands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert