Haldið sofandi eftir að hafa skollið á stönginni

Taiwo Awoniyi sárþjáður eftir að hafa skollið á stönginni um …
Taiwo Awoniyi sárþjáður eftir að hafa skollið á stönginni um helgina. AFP/Justin Tallis

Níg­er­íska knatt­spyrnu­mann­in­um Taiwo Awon­iyi er haldið sof­andi í önd­un­ar­vél á sjúkra­húsi eft­ir að hafa geng­ist und­ir bráðaaðgerð í kjöl­far þess að hafa skollið á mark­s­töng í leik með liði sínu Nott­ing­ham For­est um liðna helgi.

Ristill Awon­iyi sprakk þegar hann klessti á stöng­ina við að reyna að ná til fyr­ir­gjaf­ar. Hélt sókn­ar­maður­inn leik áfram eft­ir langa aðhlynn­ingu en var greini­lega þjakaður.

Sky Sports grein­ir frá því að Awon­iyi sé ekki í lífs­hættu og að ákvörðunin um að halda hon­um sof­andi hafi verið tek­in með það fyr­ir aug­um að stjórna hjart­slætti Níg­er­íu­manns­ins og koma í veg fyr­ir að hann hreyfi sig of mikið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert