Man United setti tvö félagsmet í gær

Það hefur lítið gengið hjá lærisveinum Ruben Amorim í ensku …
Það hefur lítið gengið hjá lærisveinum Ruben Amorim í ensku úrvalsdeildinni. AFP/Glyn Kirk

Manchester United tapaði sín­um átjánda deild­ar­leik á tíma­bil­inu í gær­kvöldi þegar liðið tapaði fyr­ir Chel­sea, 1:0. Eft­ir 37 leiki í deild­inni hef­ur United tapað 18 og sit­ur í 16. sæti ensku úr­vals­deild­ar­inn­ar þegar ein um­ferð er óspiluð.

Með tap­inu í gær var það staðfest að liðið mun ekki ná að vinna tvo úr­vals­deild­ar­leiki í röð á tíma­bil­inu í fyrsta sinn í sögu úr­vals­deild­ar­inn­ar. Þá er þetta einnig í fyrsta sinn í sögu úr­vals­deild­ar­inn­ar sem United er án sig­urs í átta leikj­um í röð.

Í síðustu átta leikj­um hef­ur United tapað sex og gert tvö jafn­tefli og er með versta ár­ang­ur allra liða í deild­inni á því tíma­bili.

Man United hef­ur aðeins unnið tíu deild­ar­leiki í vet­ur en það er lang­versti ár­ang­ur fé­lags­ins en versta sig­ur­hlut­fallið til þessa var tíma­bilið 2021-22 þegar liðið vann sex­tán leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert