Alls munu fimmtán leikmenn yfirgefa enska knattspyrnufélagið Birmingham City í sumar þegar samningar þeirra renna út.
Félagið tryggði sér öruggan sigur í ensku C-deildinni á nýliðnu keppnistímabili, setti nýtt stigamet í allri deildakeppninni og leikur á ný í ensku B-deildinni á næstu leiktíð eftir eins árs fjarveru.
Tom Brady, fyrrverandi leikstjórnandi í bandarísku NFL-deildinni í ruðningi, á stóran hlut í enska félaginu og hann hefur boðað breytingar á leikmannahópnum í sumar.
Íslensku landsliðsmennirnir Alfons Samspted og Willum Þór Willumsson eru báðir samningsbundnir Birmingham og verða áfram í herbúðum félagsins á næstu leiktíð.