Amorim biðst afsökunar en lofar góðum dögum

Ruben Amorim ávarpar stuðningsmenn Manchester United eftir sigurinn í gær.
Ruben Amorim ávarpar stuðningsmenn Manchester United eftir sigurinn í gær. AFP/Darren Staples

Ru­ben Amorim, knatt­spyrn­u­stjóri Manchester United, baðst af­sök­un­ar á tíma­bili fé­lags­ins eft­ir 2:0-sig­ur liðsins gegn Ast­on Villa í gær.

„Fyrst og fremst lang­ar mig að biðjast af­sök­un­ar á þessu tíma­bili, ég veit að það var mjög erfitt að styðja okk­ur í mörg­um leikj­um,“ sagði Amorim í gær. 

Amorim lofaði þó stuðnings­mönn­um fé­lags­ins að góðir dag­ar væru fram und­an á Old Trafford. 

„Fyr­ir sex mánuðum eft­ir fyrstu þrjá leik­ina und­ir minni stjórn, þar af tvo sigra og eitt jafn­tefli, þá sagði ég við ykk­ur að storm­ur væri á leiðinni. Í dag, eft­ir þetta hörm­ung­ar­tíma­bil, lang­ar mig að segja ykk­ur að góðu dag­arn­ir eru fram und­an,“ bætti Amorim við. 

Manchester United endaði tíma­bilið í 15. sæti ensku úr­vals­deild­ar­inn­ar með 42 stig en fé­lagið hef­ur aldrei endað neðar frá stofn­un henn­ar árið 1992.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert