Spænski knattspyrnumaðurinn Martin Zubimendi er við það að ganga í raðir Arsenal. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.
Félögin hafa náð samkomulagi og mun Arsenal greiða Real Sociedad 51 milljón punda fyrir Zubimendi, sem er 26 ára varnartengiliður, en félagið hefur lengi haft áhuga á honum.
Kaup Arsenal á Zubimendi eru háð því hvort hann komist í gegnum læknisskoðun.
Arsenal hefur einnig áhuga á að styrkja sóknina sína en félagið hefur mikinn áhuga á framherjunum Viktor Gyökeres og Benjamin Sesko.