Held að Fernandes vilji vera áfram

Verður Bruno Fernandes áfram hjá Manchester United?
Verður Bruno Fernandes áfram hjá Manchester United? AFP/Darren Staples

Rú­ben Amorim, knatt­spyrn­u­stjóri Manchester United, kveðst hafa til­finn­ingu fyr­ir því að fyr­irliðinn Bruno Fern­and­es vilji vera um kyrrt hjá fé­lag­inu þrátt fyr­ir mik­inn áhuga sádi­ar­ab­íska fé­lags­ins Al-Hilal á hon­um.

„Ég held að hann vilji vera áfram. Hann hef­ur hafnað mörg­um en hef­ur sýnt fram á að hann vilji vinna. Hann er mjög góður og þarf að vera í bestu deild heims. Ég er auðvitað stjór­inn en stund­um er þetta ákvörðun leik­manns­ins.

Ég tala auðvitað við hann og út­skýri hlut­ina og ég bara hef þá til­finn­ingu. Þegar maður tal­ar við ein­hvern hef­ur maður til­finn­ingu fyr­ir því hvort viðkom­andi vilji vera um kyrrt.

Auðvitað var hann oft pirraður en hann veit hvað við erum að gera. Til­finn­ing­in sem ég fæ í hvert skipti sem ég tala við hann er sú að hann vilji halda áfram með okk­ur en maður veit aldrei,“ sagði Amorim á frétta­manna­fundi í Hong Kong í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert