Fernandes fer ekki fet

Bruno Fernandes verður áfram í Manchester.
Bruno Fernandes verður áfram í Manchester. AFP/César Manso

Portú­galski knatt­spyrnumaður­inn Bruno Fern­and­es hef­ur tekið ákvörðun um að vera um kyrrt hjá Manchester United þrátt fyr­ir að hafa fengið gylli­boð frá sádi­ar­ab­íska fé­lag­inu Al-Hilal.

Ítalski fé­laga­skipta­sér­fræðing­ur­inn Fabrizio Romano grein­ir frá á X-aðgangi sín­um og Ben Jac­obs hjá íþrótta­vefn­um Gi­vemesport tek­ur í sama streng.

Fern­and­es var með til­boð á borðinu sem hefði fært hon­um stjarn­fræðileg­ar upp­hæðir í vas­ann en eft­ir að hafa ráðfært sig við fjöl­skyldu sína ákvað Fern­and­es, sem er fyr­irliði Man. United, að vera um kyrrt.

Al-Hilal var ekki búið að leggja fram form­legt til­boð í Portú­gal­ann spark­vissa en var reiðubúið að greiða þá upp­hæð sem Man. United hefði beðið um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert