Nýliðarnir styrkja sig fyrir metfé

Enzo Le Fée er genginn til liðs við Roma.
Enzo Le Fée er genginn til liðs við Roma. Ljósmynd/Roma

Nýliðar Sund­erland í ensku úr­vals­deild­inni hafa gengið frá kaup­um á franska miðju­mann­in­um Enzo Le Fée. Hann skrif­ar und­ir fjög­urra ára samn­ing hjá fé­lag­inu.

Le Fée kem­ur frá Roma á Ítal­íu en hann lék með Sund­erland að láni á seinni­hluta ný­af­staðins tíma­bils.

Sund­erland nýt­ir ákvæði í láns­samn­ing­um um að ef liðið kæm­ist upp um deild myndi það kaupa Le Fée. Sund­erland tryggði sér sæti í úr­vals­deild­inni eft­ir ótrú­leg­an 2:1-sig­ur gegn Sheffield United í úr­slita­leik um­spils­ins.

Sam­kvæmt Sky Sports greiðir Sund­erland 20 millj­ón­ir punda fyr­ir Frakk­ann sem ger­ir hann að dýr­asta leik­manni í sögu fé­lags­ins.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert