Enska knattspyrnufélagið Arsenal hefur selt portúgalska bakvörðinn Nuno Tavares til Lazio, þar sem hann lék að láni á síðasta tímabili.
Í lánssamningnum var ákvæði um kaupskyldu og hefur Lazio virkjað það. Greiðir ítalska félagið á bilinu sex til sjö milljónir punda fyrir Tavares.
Hann er 25 ára vinstri bakvörður sem var lykilmaður hjá Lazio á nýafstöðnu tímabili og lék alls 28 leiki fyrir Arsenal í öllum keppnum og skoraði í þeim eitt mark.
Einnig hefur Tavares leikið með Nottingham Forest og Marseille að láni frá Arsenal.