Sá dýrasti fer til Arsenal

Kepa Arrizabalaga er á leið til Arsenal.
Kepa Arrizabalaga er á leið til Arsenal. AFP/Glyn Kirk

Enska knatt­spyrnu­fé­lagið Arsenal hef­ur samið við spænska markvörðinn Kepa Arriza­ba­laga um að ganga til liðs við fé­lagið frá ná­grönn­un­um í Chel­sea.

The At­hletic grein­ir frá því að Kepa, sem er þrítug­ur, sé með fimm millj­óna punda kaupá­kvæði í samn­ingi sín­um við Chel­sea og að Arsenal muni virkja það.

Kepa lék að láni hjá Bour­nemouth á síðasta tíma­bili og stóð sig vel. Þegar Chel­sea keypti hann frá At­hletic Bil­bao á 80 millj­ón­ir evra sum­arið 2018 varð Kepa dýr­asti markvörður frá upp­hafi. Stend­ur það met enn.

Hann mun berj­ast við landa sinn Dav­id Raya um markv­arðar­stöðuna hjá Arsenal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert