Chelsea heldur áfram að styrkja sig

Mamadou Sarr er genginn til liðs við Chelsea.
Mamadou Sarr er genginn til liðs við Chelsea. Ljósmynd/Chelsea

Chel­sea hef­ur fest kaup á franska knatt­spyrnu­mann­in­um Mama­dou Sarr frá Stras­bourg í Frakklandi. Hann skrif­ar und­ir átta ára samn­ing hjá fé­lag­inu.

Hinn 19 ára Sarr var í stóru hlut­verki hjá Stras­bourg á ný­af­staðinni leiktíð sem tryggði sér sæti í Sam­bands­deild Evr­ópu á næstu leiktíð.

Sarr get­ur verið með Chel­sea á heims­meist­ara­móti fé­lagsliða en Chel­sea hef­ur leik gegn Los Ang­eles FC eft­ir viku.

Bæði Stras­bourg og Chel­sea eru í eigu Blu­eCo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert