Senegal gerði sér lítið fyrir og skellti Englendingum í vináttulandsleik karla í knattspyrnu í Nottingham í kvöld, 3:1.
Enska liðið byrjaði vel og Harry Kane skoraði strax á 7. mínútu eftir sendingu frá Anthony Gordon.
Ismaila Sarr, leikmaður Crystal Palace, jafnaði fyrir Senegal á 40. mínútu eftir undirbúning Nicolas Jacksons, leikmanns Chelsea, 1:1.
Habib Diarra skoraði síðan, 2:1, á 62. mínútu eftir sendingu frá Kalidou Koulibaly og í uppbótartíma innsiglaði Cheikh Sabaly sigur Senegala með þriðja markinu.