Fjármálanefnd félagsliða hjá UEFA, Knattspyrnusambandi Evrópu, hefur krafist þess að ensku bikarmeistararnir Crystal Palace sanni að bandaríski kaupsýslumaðurinn John Textor hafi ekki afgerandi áhrif á starfsemi félagsins.
Crystal Palace ætti að keppa í Evrópudeildinni næsta vetur, sem bikarmeistari Englands, en samkvæmt reglum UEFA mega tvö lið með sama eiganda ekki taka þátt í sömu keppni á vegum sambandsins.
Textor er meðeigandi í bæði Crystal Palace og franska félaginu Lyon sem einnig hefur unnið sér keppnisrétt í Evrópudeildinni.
Viðræður milli forráðamanna Crystal Palace og fulltrúa UEFA hafa staðið yfir í nokkurn tíma.
Sky Sports segir að Textor sé tilbúinn til að segja af sér sem stjórnarmaður Palace og sé jafnframt í viðræðum um að selja eignarhaldsfélagið Eagle Football Holdings en í gegnum það er hann einn eigenda enska félagsins.