Jude Bellingham, leikmaður Real Madrid, átti erfitt með að hemja skapið í gærkvöld þegar England tapaði óvænt fyrir Senegal, 3:1, í vináttulandsleik í knattspyrnu á City Ground í Nottingham.
Í stöðunni 2:1 var mark Bellinghams sem hefði jafnað metin fyrir Englendinga dæmt af vegna hendi á samherja hans í aðdraganda marksins.
Það fór ekki vel í Bellingham og eftir að leikurinn hafði verið flautaður af sparkaði hann boltanum í burtu og setti stefnuna á einn úr dómaratríóinu en fyrirliðinn Harry Kane náði að stöðva hann og koma honum í burtu.
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englendinga ræddi þetta m.a. við The Athletic eftir leikinn. „Maður sér stundum hve mikið skap hann hefur, þú sérð hungrið, skapið og eldinn í æðum hans, og stundum er birtingarmyndin dálítið fráhrindandi. Til dæmis finnst móður minni það þegar hún horfir á hann spila í sjónvarpinu," sagði þýski landsliðsþjálfarinn.