Hollenski knattspyrnumaðurinn Tijjani Reijnders er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en hollenski miðjumaðurinn, sem er 26 ára gamall, skrifaði undir fimm ára samning við City.
Hann kemur til félagsins frá AC Milan á Ítalíu þar sem hann hefur leikið frá árinu 2023 en City borgaði 46,5 milljónir punda fyrir hollenska landsliðsmanninn.
Alls lék hann 104 leiki fyrir Milan þar sem hann skoraði 19 mörk og lagði upp önnur 9 til viðbótar en hann er uppalinn hjá Zwolle í heimalandinu.