Sögulegt tap Englendinga

Conor Gallagher og Ismaila Sarr berjast í leiknum í gærkvöldi.
Conor Gallagher og Ismaila Sarr berjast í leiknum í gærkvöldi. AFP/Paul Ellis

Tap Eng­lands fyr­ir Senegal í vináttu­lands­leik karla í knatt­spyrnu á City Ground í Nott­ing­ham í gær­kvöldi reynd­ist sögu­legt.

Leikn­um lauk með 3:1-sigri Sene­gals eft­ir að Harry Kane hafði komið Englandi yfir.

Þar með tapaði Eng­land fyr­ir þjóð frá Afr­íku í fyrsta sinn í sögu karla­landsliðsins. Breska rík­is­út­varpið vakti at­hygli á þess­ari staðreynd.

Nokkr­ar áhyggj­ur eru af liðinu á meðal enskra fjöl­miðla þar sem eitt ár er í að HM 2026 hefj­ist og spila­mennsk­an und­ir stjórn Thom­as Tuchel ekki verið sér­lega sann­fær­andi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert