Vill samlanda sinn til Arsenal

Gabriel Magalhaes vill fá Rodrygo til Arsenal.
Gabriel Magalhaes vill fá Rodrygo til Arsenal. AFP/Benjamin Cremel

Gabriel Mag­al­haes, leikmaður Arsenal og bras­il­íska landsliðsins, vill gjarn­an sjá landa sinn Rodrygo ganga til liðs við Arsenal.

Rodrygo, sem leik­ur með Real Madrid, hef­ur verið orðaður við Arsenal und­an­farið en fé­lagið er í leit að vinstri kant­manni.

„Ég veit það ekki, ég væri til í að sjá það en hver veit? Fyr­ir mér er Rodrygo stór­kost­leg­ur,“ sagði Gabriel aðspurður um hvort hann vildi fá Rodrygo til Arsenal.

Arsenal fylg­ist sömu­leiðis grannt með spænska kant­mann­in­um Nico Williams. Fé­lagið er einnig í leit að fram­herja en Benjam­in Sesko, leikmaður RB Leipzig, og Vikt­or Gyök­eres eru á lista hjá Arsenal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert