Tilboð Liverpool í Wirtz formlega samþykkt

Florian Wirtz í leik með þýska landsliðinu.
Florian Wirtz í leik með þýska landsliðinu. AFP/Tobias Schwarz

Enska knatt­spyrnu­fé­lagið Li­verpool hef­ur fengið samþykkt til­boð upp á sam­tals 116 millj­ón­ir punda í þýska sókn­artengiliðinn Flori­an Wirtz, leik­mann Bayer Le­verku­sen.

Skipt­in hafa legið lengi í loft­inu en nú hafa hinir áreiðan­legu Paul Joyce hjá The Times og Dav­id Orn­stein hjá The At­hletic greint frá því að fé­lög­in hafi kom­ist að sam­komu­lagi.

Áður hafði fé­laga­skipta­sér­fræðing­ur­inn Fabrizio Romano skýrt frá því að allt væri klappað og klárt en sagði upp­hæðina þá vera 127 millj­ón­ir punda.

Gæti orðið sá dýr­asti á Bret­lands­eyj­um

Li­verpool greiðir Le­verku­sen 100 millj­ón­ir punda auk þess sem 16 millj­ón­ir gætu bæst við að ákveðnum ákvæðum upp­fyllt­um.

Tak­ist að upp­fylla þau verður Wirtz dýr­asti leikmaður sem hef­ur verið keypt­ur til Bret­lands­eyja og þriðji dýr­asti leikmaður­inn í sög­unni á eft­ir Neym­ar og Kyli­an Mbappé.

Þjóðverj­inn, sem er 22 ára, mun skrifa und­ir fimm ára samn­ing við Li­verpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert