Tottenham er nálægt því að ná samkomulagi við Bayern München um kaupin á franska sóknarmanninum Mathys Tel.
Tel, sem er 20 ára, lék með Tottenham á seinni hluta tímabilsins að láni frá Bayern en hann skoraði tvö mörk í 11 leikjum fyrir Lundúnaliðið í deildinni.
Samkvæmt þýska fjölmiðlinum Bild mun Tottenham að öllum líkindum greiða 35 milljónir punda að auki 10 milljónir í árangurstengdar greiðslur.
Tottenham hefur einnig áhuga á sóknarmönnunum Bryan Mbeumo, leikmanni Brentford, og Antoine Semenyo, leikmanni Bournemouth.