Dórabikarinn verður haldinn um helgina, 4.-5. desember, en það er seinasti Dota 2-viðburður ársins í íslenska Dota-samfélaginu.
Fer mótið fram í tvöfaldri útsláttarkeppni og verður spilað bæði á laugardags- og sunnudagskvöld og er öllum liðum boðið að skrá sig. Skráning fer fram á challengermode.
Á laugardagskvöldinu verða leikir spilaðir í gegnum netið og spila keppendur þá að heiman frá sér en á sunnudagskvöldinu verða úrslitaleikir spilaðir í rafíþróttahöllinni Arena. Streymt verður auk þess frá úrslitaleikjum á twitchrás Rafíþróttasamtaka Íslands.
„Við erum að halda áfram að efla og byggja upp senuna,“ segir Bergur Árnason, einnig þekktur sem „flying“, í samtali við mbl.is.
Íslenskir Dota-leikmenn hafa einnig útbúið sérstaka rás á spjallforritinu Discord og fara þar bæði tilkynningar og umræður fram sem tengast leiknum. Eins hafa Dota-leikmenn verið að spila saman og spjalla þá í gegnum þá rás.
Að lokum tekur Bergur fram að allir séu velkomnir og samfélagið sé alltaf að leita að fleiri spilurum í senuna.