„Ákvað að prófa bara“

Alda Ósk Valgeirsdóttir, einnig þekkt sem ActuallyAlda.
Alda Ósk Valgeirsdóttir, einnig þekkt sem ActuallyAlda. Ljósmynd/Aðsend

Alda Ósk Val­geirs­dótt­ir, einnig þekkt sem ActuallyAlda, er 26 ára gam­all rafíþróttamaður en hún kepp­ir í tölvu­leikn­um Overwatch með Þor­birni í Grinda­vík.

„Ég reyni að spila eitt­hvað smá á hverj­um degi, horfi líka mikið á Twitch og YouTu­be á spil­ara sem eru í hæsta gæðaflokki og reyni að læra af þeim,“ seg­ir Alda í sam­tali við mbl.is.

Seg­ir hún Overwatch ef­laust vera henn­ar upp­á­halds tölvu­leik en bæt­ir við að henni finn­ist marg­ir aðrir leik­ir skemmti­leg­ir. Auk þess hef­ur hún kynnst mikið af skemmti­legu fólki í gegn­um leik­inn sem hún spil­ar og tel­ur jafn­framt suma þeirra vera sína bestu vini.

Spil­ar ennþá tutt­ugu árum seinna

Fyrsti leik­ur­inn sem hún man eft­ir að hafa spilað er Super Mario World á Game­Boy Advance en þá var hún ekki nema um sex ára göm­ul. Tutt­ugu árum seinna er hún enn að spila tölvu­leiki en hún byrjaði að stunda rafíþrótt­ir um haustið árið 2020, þegar hún sá aug­lýs­ingu á Discord-rás Overwatch sam­fé­lags­ins á Íslandi.

Í henni kom fram að stofn­un ís­lenskr­ar deild­ar í tölvu­leikn­um væri í bíg­erð og gátu áhuga­sam­ir haft sam­band og tekið þátt.

Tók á skarið

„Þar var bæði hægt að skrá sig sem lið eða ein­stak­ling. Þar sem ég þekkti eng­an í ís­lenska Overwatch sam­fé­lag­inu á þeim tíma, ákvað ég að skrá mig sem ein­stak­ling - þrátt fyr­ir mikla feimni og að vera hrædd um að ég væri of lé­leg til að taka þátt,“ seg­ir Alda.

„Ég lenti með æðis­legu fólki í liði og fannst æðis­legt að æfa og keppa. Liðið hætti en ég fann nýtt lið og hef alltaf verið mjög hepp­in með liðsfé­laga.“

Vin­kon­urn­ar skipt­ust á

Á hún marg­ar góðar minn­ing­ar tengd­ar tölvu­leikj­um að baki. Má nefna þegar hún var á leik­skóla­aldri og fékk að prófa bíla­leik sem pabbi henn­ar átti. Hún spilaði líka mikið á fyrstu PlayStati­on tölv­una með nokkr­um frænd­um sín­um og eins tölvu­leik­inn Sims með vin­kon­um sín­um.

„Ég og bestu vin­kon­ur mín­ar í grunn­skóla spiluðum all­ar Sims og oft var búin til sitt­hvor fjöl­skyld­an og skipt­umst við á að spila sól­ar­hring í leikn­um, og skipt­um svo aft­ur.“

Eign­ast vini í gegn­um tölvu­leiki

Tölvu­leik­ir hafa alltaf verið stór part­ur í lífi Öldu og hef­ur hún kynnst mörg­um vin­um sín­um í gegn­um þá, bæði hér á Íslandi sem og er­lend­is.

„Ég var búin að vera vina­fá mjög lengi og tölvu­leik­ir hafa verið gott tól til þess að kynn­ast nýju og skemmti­legu fólki sem ég er nán­ast í dag­leg­um sam­skipt­um við í dag,“ seg­ir Alda og nefn­ir að hún væri til í að sjá fleiri ung­ar stelp­ur stunda rafíþrótt­ir.

Mik­il­vægt að hafa gam­an

Henn­ar aðal­mark­mið í fag­inu er að bæta sig og halda áfram að spila eins lengi og hún get­ur. Auk þess hef­ur hún það alltaf að mark­miðið að hafa gam­an og njóta þess að spila því að henni þykir það vera mik­il­væg­ur þátt­ur í þessu.

Alda streym­ir reglu­lega frá sér að spila á Twitch-rás­inni actuallyalda. Hún er ekki með neina fasta tíma en reyn­ir að streyma um tvisvar til þris­var sinn­um í viku.

Finn­ur frelsi í streymun­um

„Ég ákvað að byrja að streyma um mitt árið 2020 þegar ég var ný­bú­in að fá nýja og flotta borðtölvu í staðinn fyr­ir far­tölvu,“ seg­ir Alda sem hafði lengi langað til þess að byrja en var alltaf „of hrædd“ við að byrja þar sem hún er feim­in að eðlis­fari.

Fékk hún lánað hug­rekki þegar hún heyrði einn af henn­ar upp­á­halds streymur­um tala um að hann væri sjálf­ur mjög feim­in í sínu dag­lega lífi en henni hafði aldrei dottið það í hug.

„Eft­ir að ég heyrði þetta ákvað ég að prófa bara, fyrstu skipt­in voru lang erfiðust en hvert skipti varð auðveld­ara og auðveld­ara.“

Að streyma hef­ur fært Öldu mikla gleði og nýt­ur hún þess að tala við fólkið sem kík­ir við og seg­ir hæ.

„Ég lifi mig mikið inn í það og finnst mér það gefa mér frelsi í að vera ég sjálf og koma út úr skel­inni minni, án þess að vera hrædd við að vera dæmd fyr­ir að vera ég sjálf.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert