Endurskapar Stormwind í Minecraft

Stormwind er stórborg í World of Warcraft.
Stormwind er stórborg í World of Warcraft. Grafík/Activision Blizzard

Fjöl­marg­ir Minecraft-leik­menn hafa end­ur­skapað heima eða borg­ir úr öðrum tölvu­leikj­um inn­an Minecraft. 

YouTu­be-stjarn­an Yunata­hel hef­ur nú vakið at­hygli Blizz­ards þar sem hann er að vinna í að end­ur­skapa stór­borg­ina Stormwind í Azeroth, World of Warcraft.

Yunata­hel hleður reglu­lega upp World of Warcraft mynd­bönd­um og er þetta verk­efni því ögn frá­brugðið hans hefðbundnu mynd­bönd­um.

Blizz­ard tísti til­baka

Verk­efnið er enn í vinnslu og óvíst er hvenær borg­in verði full­kláruð, en hægt að sjá það hér að neðan í mynd­bandi sem Yunata­hel birti á Twitter.

Tístið vakti mikla at­hygli og svaraði Blizz­ard tíst­inu á frönsku.

„Get ekki beðið eft­ir að sjá loka­út­kom­una,“ svaraði Blizz­ard á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert