Rafíþróttaliðið Atgeirar fór með glæstan sigur af hólmi um helgina á Overwatch-móti sem fór fram í rafíþróttahöllinni Arena.
Atgeirar töpuðu ekki einu korti á mótinu og átti með því mjög sannfærandi sigur, en vert er að nefna að liðið hefur nú unnið þrjú lanmót í röð.
„Það gekk bara mjög vel, við bara slátruðum þessu eiginlega,“ sagði Magnús Hinrik Bragason „avvii“, leikmaður Atgeira, í samtali við mbl.is eftir sigurinn.
Liðsmenn Atgeira fóru inn í mótið fullir sjálfstrausts og kom sigurinn þeim ekki á óvart, hinsvegar voru þeir hissa á því að sjá ekki keppnislið NÚ í úrslitum.
„Við vorum mjög spenntir fyrir NÚ,“ sagði Fannar Logi Bragason „TheChosenOne“, þjálfari Atgeira, í samtali við mbl.is og bætir við að NÚ hafi lofað góðu, enda með öfluga leikmenn, góða aðstöðu og tvo þjálfara.
Almenni í Overwatch er að hefjast á ný eftir hlé, en Almenna Helgarmótið fer fram næstu og þarnæstu helgi. Þá er keppt í Opnu deildinni næstu helgi og Úrvalsdeildinni þarnæstu.
Atgeirum hlakkar því mikið til að mæta þeim í Almenna
„Við búumst við því að þeir verði betri í Helgarmótinu,“ sagði Rúnar Óli Eiríksson „Rúnki“, leikmaður Atgeira, í samtali við mbl.is.