Tveir gaurar með einn bikar eru á allra vörum innan íslenska League of Legends-samfélagsins um þessar mundir.
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig til leiks í liðsstjóramótið „tveir gaurar, einn bikar“ sem Sölvi Karlsson og Hafliði Örn Ólafsson, betur þekktur sem Flati, eru að efna til í aðdraganda jóla.
Skráning fer fram með í gegnum þennan hlekk og eru þar jafnframt nánari upplýsingar að finna. Lokað verður fyrir nýjar skráningar á miðnætti á sunnudaginn 11. desember, eða klukkan 23:59 á sunnudagskvöldið.
Flati og Sölvi velja liðsstjóra sem síðan fá það hlutverk að setja saman lið útfrá skráðum þátttakendum.
Þá munu liðsstjórarnir raða þátttakendum niður í lið í beinni útsendingu þann 13. desember á Twitch.
Mótið sjálft hefst 16. desember og verða viðureignir spilaðar bæði þann 16. og 17. desember.
Í tilkynningu segir að Gissur Baldvinsson muni slíta mótinu með spurningakeppni, en þá svara ákveðnir leikmenn frá mótinu skemmtilegum spurningum í beinni útsendingu.
Slík spurningakeppni í lok móts þekkist vel hér á landi og hefur orðið til þess að áhorfendur jafnt sem leikmenn skemmti sér saman langt fram á nótt.
Á Discord-rás íslenska LoL-samfélagsins má einnig finna nánari upplýsingar um mótið ásamt umræðu í tengslum við mótið, leikinn sjálfan og fleira.