Synir Lúlla neðstir á lokasprettinum

Kraftvéladeildin í Dota 2.
Kraftvéladeildin í Dota 2. Grafík/Dota á Íslandi

Kraft­véla­deild­in í Dota 2 er í fullu fjöri en jafn­framt á loka­sprett­in­um, þar sem úr­slit­in eru rétt hand­an við hornið.

Útslátt­ar­keppn­in er haf­in og verða úr­slit­in spiluð inn­an tveggja vikna, eða á sunnu­deg­in­um 29. janú­ar.

Nýliðar bætt sig á mót­inu

Berg­ur Árna­son „flying“, í móta­stjórn Kraft­véla­deild­ar­inn­ar sem og kepp­andi, seg­ir í sam­tali við mbl.is að gang­ur­inn hafi verið þétt­ur í Kraft­véla­deild­inni upp á síðkastið og sam­heldn­in í sam­fé­lag­inu einnig mik­il. 

Þá er móta­stjórn einnig gríðarlega ánægð með þátt­töku nýliða á mót­inu og seg­ir Berg­ur að sér­stak­lega gam­an sé að fylgj­ast með því hversu mikið þeir hafa bætt sig á mót­inu.

„Við erum bún­ir að vera mjög ánægðir með nýliðaþát­töku á mót­inu og gam­an að sjá hversu mikið þeir hafa bætt sig yfir mótið og hversu vel sam­fé­lagið tek­ur á móti nýj­um og áhuga­söm­um spil­ur­um, seg­ir Berg­ur í sam­tali við mbl.is.

„DOTA er gam­all leik­ur með frek­ar háan meðal­ald­ur, fyr­ir tölvu­leikja­sam­fé­lag, og þess vegna fögn­um við alltaf þegar að nýj­ir leik­menn bæt­ast í hóp­inn.“

SÍLD kom­in á lagg­irn­ar 

Úrslit­in verða spiluð í rafíþrótta­höll­inni Ar­ena og stend­ur til að sýna frá þeim í beinni út­send­ingu. Þá verður út­send­ing­in fyrst á Twitch-rás Rafíþrótta­sam­taka Íslands en fær­ist svo yfir á Twitch-rás Dota-sam­fé­lags­ins klukk­an 17:00 þegar komið er að Val­or­ant-út­send­ingu RÍSÍ.

„Við erum bún­ir að vera mjög ánægðir með hversu vel hef­ur gengið að senda út leiki á Twitch en við höf­um náð að senda út flesta leiki og verið að lýsa leikj­un­um af sirka 6 mis­mun­andi Twitch rás­um,“ seg­ir Berg­ur.

„Þá var áhuga­manna­fé­lagið „Sam­band ís­lenskra lý­senda í DOTA“, SÍLD, stofnað fyr­ir þenn­an vax­andi hóp lý­senda og Ægir Björn á heiður­inn að því ágæta nafni.“

Stefndu hátt og eru stiga­hæst­ir

Í síðasta mánuði greindi mbl.is frá nýju Dota-liði Fylk­is og að liðið stefni hátt á tíma­bil­inu, en meðal leik­manna í Fylki er Atli Snær Sig­urðsson, undra­barn í Dota 2. Svo virðist vera sem Fylk­ir standi und­ir metnaði þar sem liðið er nú stiga­hæst með 22 stig og enn tap­laust á mót­inu.

„Það má sjá merkj­an­leg­an mun á keppn­is­stigi í Kraft­véla­deild­inni, það er að segja hversu al­var­leg og erfið sam­keppn­in er, miðað við fyrri DOTA-mót,“ seg­ir Berg­ur.

„Þar á íþrótta­fé­lagið Fylk­ir og DOTA-lið þeirra hrós skilið þar sem að þeir hafa sýnt og sannað hversu góðum niður­stöðum er hægt að ná með góðum æf­ing­um, þraut­seigju og keppn­is­skapi.“

Rétt und­ir Fylki eru Kórdreng­ir með 18 stig og Frændafli með 15 stig þar á eft­ir. Vert er að nefna að Syn­ir Lúlla hafa enn ekki unnið eða jafnað leik á tíma­bil­inu, og sitja neðstir í deild­inni með eng­in stig og ell­efu tap­leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert