Heimsmeistaramótið í Arena-bikarnum, AWC, í World of Warcraft Dragonflight er í fullu fjöri en vert er að nefna að verðlaunapotturinn býr að tæplega 60 milljónum íslenskum krónum.
Verðlaunafénu er dreift yfir allt tímabilið en í heildina situr potturinn í 400.000 bandarískum dölum, sem gera 57.236.000 krónur og er ansi há upphæð. Tímabilið stendur fram í apríl en þá verða úrslitin spiluð.
Fram að úrslitum verður keppt í fjórum bikarmótum þar sem gefið verður 10.000 dali á hverju móti, en það er tæplega eina og hálf milljón íslenskra króna.
Undanúrslitin verða spiluð 31. mars en eins og kemur fram hér að ofan verða úrslitin spiluð í beinu framhaldi, dagana 1. og 2. apríl.
Nánari upplýsingar um heimsmeistaramótið í Arena-bikarnum má lesa með því að fylgja þessum hlekk.