Gætu brotið blað í sögu keppnissenunnar

Lið Fylkis. Á myndinni má sjá liðsmennina í DOTA og …
Lið Fylkis. Á myndinni má sjá liðsmennina í DOTA og yfirþjálfara Fylkis, Sigurð Bjarka. Ljósmynd/Rakel Guðmundsdóttir

Spenn­an er orðin gríðarleg í Kraft­véla­deild­inni þar sem síðar í kvöld verður ljóst hvaða Dota 2-lið kem­ur sér upp úr neðra leikja­trénu og í undanúr­slit­in sem fara fram annað kvöld. Það lið mæt­ir þá hugs­an­lega Fylki í úr­slita­leik deild­ar­inn­ar en hann verður spilaður sama kvöld.

Lið í neðra leikja­tré deild­ar­inn­ar hafa ham­ast á lykla­borðinu í all­an dag í von um að tryggja sér sæti í undanúr­slit­un­um sem fara fram í rafíþrótta­höll­inni Ar­ena annað kvöld.

Vert er að nefna að Fylk­ir hef­ur enn ekki tapað leik á mót­inu og væri sig­ur þeirra á mót­inu því ansi merki­leg­ur áfangi. Þá ekki aðeins fyr­ir íþrótta­fé­lagið Fylki, held­ur kæm­ist það einnig í sögu­bæk­urn­ar um ís­lensku keppn­is­sen­una í Dota 2.

Seg­ir Kórdreng­ina vera seiga

Í sam­tali við mbl.is seg­ir Ró­bert Örn Vig­fús­son, leikmaður Fylk­is, að „þeir séu all­ir hel­víti kát­ir og létt­ir á því“ yfir þessu. Þá grun­ar hann að þeir muni mæta Kórdrengj­um í úr­slita­leikn­um.

„Þeir eru bún­ir að vera hel­viti seig­ir, ég býst við erfiðum leikj­um frá þeim. Við erum bún­ir að keppa á móti þeim tvisvar áður og unnið á móti þeim í bæði skipt­in,“ seg­ir Ró­bert í sam­tali við mbl.is.

„Ann­ars held ég að við tök­um þessa deild með stæl og glensi.“

Kraftvéladeildin í Dota 2.
Kraft­véla­deild­in í Dota 2. Grafík/​Dota á Íslandi

Koma, sjá og sigra  - kannski

Er þessi loka­sprett­ur Kraft­véla­deild­ar­inn­ar því ansi spenn­andi og þá sér­stak­lega fyr­ir Fylki, en þetta er í fyrsta skiptið sem keppt er und­ir merkj­um Fylk­is í deild­inni.

Undanúr­slit­in sem og úr­slit­in fara fram, sem fyrr seg­ir, í rafíþrótta­höll­inni Ar­ena annað kvöld og verður sýnt frá leikj­un­um á stóra skján­um all­an dag­inn. Áætlað er að fyrstu leik­irn­ir hefj­ist í há­deg­inu, upp úr klukk­an 12:30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert