„Þá byrjaði ferillinn minn almennilega“

Ljósmynd/Hákon

Magnús Hinrik Braga­son, einnig þekkt­ur sem „avvii“, er átján ára rafíþróttamaður sem kepp­ir í Overwatch með einu sterk­asta liðinu á Íslandi, At­geir­um.

Hann hef­ur stundað rafíþrótt­ir í nokk­ur ár, en fer­ill­inn hans hófst í raun árið 2018 þegar hann tók þátt í opnu móti í Overwatch á net­inu. Þá keppti hann með handa­hófs­kennd­um leik­mönn­um og kunni vel við, en hann stundaði þetta í u.þ.b. tvö ár.

„Síðan byrjaði Al­menni bik­ar­inn árið 2020, þá heyrði Krizzi fé­lagi minn í mér og bað mig um að vera með í liðinu sem hann og fé­lag­ar hans voru að stofna,“ seg­ir Magnús í sam­tali við mbl.is.

„Þá byrjaði fer­ill­inn minn al­menni­lega.“

Spilaði í fang­inu hjá pabba

Magnús hef­ur spilað tölvu­leiki í mjög mörg ár, en hann byrjaði ung­ur að spila tölvu­leiki, aðeins fjög­urra eða fimm ára gam­all. Þá sat hann í fang­inu á pabba sín­um og spilaði með hon­um tölvu­leik­inn World of Warcraft.

„Ég spilaði tækni­lega fyrst World of Warcraft þegar ég var fjög­urra til fimm ára gam­all, árið 2008, þegar ég var í fang­inu hjá pabba að hlaupa um í Dal­ar­an og gera verk­efni (e. qu­est) í leikn­um.“

„Síðan þegar ég varð svona sex eða sjö ára, þá var ég alltaf að búa til nýja klassa í WoW og hækka um reynsluþrep (e. level) fram að svona reynsluþrepi tíu.“

Þá gerði hann nýja per­sónu í öðrum klassa aft­ur og aft­ur, því hann sá ein­hvern flott­an í hæsta reynsluþrepi í stór­borg­um World of Warcraft og langaði til þess að vera eins og hann.

Enn þann dag í dag kík­ir hann í World of Warcraft, þá þegar hann er ekki að spila Overwatch.

Á lista yfir bestu leik­menn Overwatch

Keppn­is­skapið leyn­ir sér þó ekki en hann spil­ar helst á móti öðrum leik­mönn­um í PvP þegar hann kík­ir í WoW. Hann spil­ar líka tölvu­leik­inn Val­or­ant, en seg­ist ekki end­ast lengi í hon­um vegna þess að hann verður stund­um svo pirraður.

Magnús hef­ur það að mark­miði að kom­ast í landsliðið í Overwatch og taka þátt í heims­meist­ara­mót­inu, en hann vill kom­ast eins langt og hægt er í Overwatch-keppn­is­sen­unni.

Óhætt er að segja að hann sé byrjaður að skapa sér nafn í sen­unni, en ásamt því að spila með einu sterk­asta liði Íslands um þess­ar mund­ir, At­geir­um, þá hef­ur hann einnig komið sér á lista yfir 500 bestu leik­menn­ina í Overwatch.

„Hápunkt­ur­inn minn var ör­ugg­lega þegar við unn­um fyrsta helgar­mótið í Overwatch á móti Böðlum, þótt að það var smá „incomplete roster“ hjá þeim. Var þetta samt geggjað augna­blik.“

Ger­ir það gott með At­geir­um

At­geir­ar hafa verið að gera það mjög gott und­an­farið en líkt og kem­ur fram hér að ofan eru At­geir­ar með sterk­ustu liðunum á Íslandi nú.

„Það geng­ur bara frek­ar vel í At­geir­um, en við erum samt ekki að æfa sam­an eins mikið og við vilj­um. Um leið og við byrj­um að æfa meira, þá ætti ekk­ert lið að geta unnið okk­ur held ég,“ seg­ir Magnús.

„Það sem ger­ir mest fyr­ir mig er bara til­finn­ing­in að vinna erfitt lið, það er geggjað. Ég elska líka að spila fyr­ir fram­an fólk í beinni út­send­ingu með lý­send­um og öll­um pakk­an­um.“

Leikmenn Atgeira, frá vinstri: Steinn Kári Pétursson, Kristján Logi Guðmundsson, …
Leik­menn At­geira, frá vinstri: Steinn Kári Pét­urs­son, Kristján Logi Guðmunds­son, Magnús Hinrik Braga­son, Aron Páll Sím­on­ar­son, Rún­ar Óli Ei­ríks­son. Í miðjunni er Fann­ar Logi Braga­son, þjálf­ari At­geira. mbl.is/Ó​ttar Geirs­son

Bak­ar á bak við glerið

Magnús seg­ir blaðamanni að mik­il­vægt sé að eiga góða mús þegar tölvu­leik­ir eru spilaðir, en sjálf­ur spil­ar hann með Logitech G Pro Superlig­ht. Að sama skapi hlust­ar hann mikið á tónlist, og þegar hann kepp­ir með At­geir­um hlust­ar hann helst á tón­list­ar­menn eins og Kef La­vík og MF Doom svo ein­hverj­ir séu nefnd­ir.

Fyr­ir utan rafíþrótt­irn­ar legg­ur hann hins veg­ar stund á bak­ara­nám og vinn­ur flesta daga í baka­rí­inu í sænsku hús­gagna­versl­un­inni, IKEA.

„Það sem ég geri dags­dag­lega er að baka. Ég er nefni­lega bak­ara­nemi hjá IKEA og þið getið séð mig í baka­rí­inu í gegn­um glerið í IKEA.“

Þá er hægt að koma auga á Magnús baka snúða, osta­slauf­ur, brauð og margt fleira annað en vand­ræði í gegn­um glerið.

Væri fyndið að þýða leik­inn

Aðspurður seg­ir hann að fyndið væri að spila tölvu­leik­inn Overwatch á ís­lensku, og myndi hann helst vilja sjá þann leik þýdd­an yfir á ís­lensku, í stað ein­hvers ann­ars.

Leik­ur­inn hef­ur þó ekki verið þýdd­ur yfir á ís­lensku enn þá svo Magnús spil­ar hann bara á ensku. Það er hins veg­ar ekki svo auðveld­lega hlaupið að því að sjá hann spila í beinni út­send­ingu, nema þá á rafíþrótta­móti sem streymt er frá.

Liðsfé­lagi hans er aft­ur á móti dug­leg­ur að streyma, en hann þekk­ist und­ir nafn­inu Oklok­arr og er hægt að finna hann á streym­isveit­unni Twitch.

Að lok­um þakk­ar og hæl­ir hann öll­um sem vinna í kring­um liðið At­geira en einnig aðdá­end­um sín­um, sem hann kall­ar „Avvii-goons“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert