Grimm bar­átta og sviptingar í Fortni­te

Þeir voru 55 spilararnir sem mættu ljóngrimmir til leiks í …
Þeir voru 55 spilararnir sem mættu ljóngrimmir til leiks í 2. umferð ELKO-Deildarinnar í Fortnite á mánudagskvöld þegar hart var barist um toppsætin.

Önnur um­ferð ELKO-Deildarinnar í Fortni­te fór fram á mánu­dags­kvöld og nokkrar sviptingar voru á stiga­töflunni á meðan um 55 spilarar tókust á í tveimur leikjum sem höfðu tals­verð á­hrif á stöðuna á topp 10 listanum.

Þegar leikar hófust í ELKO-Deildinni í gærkvöld voru spilararnir iKristoo og denas 13 í tveimur efstu sætunum. iKristoo datt hins vegar út snemma í fyrri leiknum þar sem denas 13 landaði sínum öðrum sigri í röð.

iKristoo náði vopnum sínum í seinni leiknum sem endaði sem einhvers konar einvígi „kristóanna“ og lauk með sigri krizzto og iKristoo í öðru sæti.

Ólafur Hrafn Steinarsson og Stefán Atli Rúnarsson lýstu leikjunum í beinni útsendingu og bentu á að mun fleiri keppendur væru mættir til leiks en í síðustu viku og einnig ljóst að þeir kæmu mun grimmari til leiks en síðast.

Að tveimur umferðum og fjórum leikjum loknum er denas 13 í 1. sæti með 99 stig, iKristoo í 2. sæti með 96 stig og krizzto í því þriðja með 75 stig.

Staðan breytist hins vegar hratt með hverjum leik og enn getur allt gerst þar sem sextán leikir eru enn eftir og haugur at stigum í pottinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert