Öruggir sigrar í tveimur ein­vígum á net­­skák­­mótinu

Skákfólkið sókndjarfa Björn Þorfinnsson og Olga Prudnykova mættust í 2. …
Skákfólkið sókndjarfa Björn Þorfinnsson og Olga Prudnykova mættust í 2. umferð Íslandsmeistaramótsins í netskák á sunnudaginn.

„Þetta hafðist en var ansi tæpt á köfl­um,“ seg­ir Björn Þor­finns­son en hann og Hann­es Hlíf­ar Stef­áns­son stóðu uppi sem sig­ur­veg­ar­ar eft­ir tvö spenn­andi ein­vígi á Ís­lands­meist­ara­móti Sím­ans í net­skák á sunnu­dags­kvöld.

Björn sigraði Olgu Prudny­kova með 5,5 vinn­ing­um á móti 2,5 og Hann­es Hlíf­ar lagði Guðmund Gísla­son einnig með 5,5 vinn­ing­um á móti 1,5.

Ingvar Þór Jó­hann­es­son og Björn Ívar Karls­son lýstu viður­eign­un­um í beinni út­send­ingu og voru þegar upp var staðið sam­mála um að þrátt fyr­ir frek­ar ör­ugga sigra hafi bæði ein­víg­in verið skemmti­leg.

Bjarn­ar­veinið berg­málaði um Kópa­vog­inn

„Þetta hafðist en var ansi tæpt á köfl­um. Olga er ól­seig og út­sjón­ar­söm og maður má aldrei missa ein­beit­ing­una,“ seg­ir Björn sem prís­ar sig sæl­an. „Ég var til að mynda kloss­mátaður í eitt skiptið upp úr þurru og bless­un­ar­lega var ekki kveikt á hljóðnema því bjarn­ar­veinið heyrðist um all­an Kópa­vog­inn.“

Fyr­ir­fram áttu Ingvar og Björn von á að sjá „taktísk­ar glær­ing­ar“ í fyrri viður­eign kvölds­ins þar sem Olga og Björn eru bæði sókndjarf­ir skálmenn. Olga þekkt fyr­ir hvass­an stíl og Björn fyr­ir „alls kon­ar flétt­ur og furðufórn­ir“.

Björn hafi þó farið bet­ur af stað og tek­ist að setja tíma­pressu á Olgu, eitt­hvað sem hann er gjarn á að gera í hraðskák­um, og hafi því sigrað nokkuð ör­ugg­lega.

Fyr­ir seinna ein­vígi kvölds­ins bentu Ingvar og Björn á að stór­meist­ar­inn Hann­es Hlíf­ar væri sterk­ari en FIDE meist­ar­inn Guðmund­ur á papp­ír­un­um og þegar úr­slit lágu fyr­ir sam­mælt­ust þeir um að heilt yfir hefði sig­ur Hann­es­ar verið nokkuð ör­ugg­ur.

Ingvar sagði Hann­es hafa haldið stjórn­inni á ein­víg­inu og að sig­ur hans hafi jafn­vel verið ör­ugg­ari en hann hafði bú­ist við.

Björn Þorfinnsson segir aldrei mega missa einbeitinguna á móti Olgu …
Björn Þorfinns­son seg­ir aldrei mega missa ein­beit­ing­una á móti Olgu og óp hans hafi heyrst um all­an Kópa­vog­inn þegar hún kloss­mátaði hann í einni skák­inni.

Með sigr­um gær­kvölds­ins eru Hann­es Hlíf­ar og Björn komn­ir í átta manna úr­slit þar sem fyr­ir voru Helgi Ólafs­son og Bragi Þorfinns­son. Helgi eft­ir 5,5 - 1,5 sig­ur á Þresti Þór­halls­syni og Bragi eft­ir að hafa lagt Dag Arn­gríms­son 6-2.

Sex­tán manna úr­slit­in eru þar með hálfnuð en halda áfram sunnu­dag­inn 6. októ­ber þegar hinir reyndu stór­meist­ar­ar Helgi Áss Grét­ars­son og Jó­hann Hjart­ars­son mæt­ast ann­ars veg­ar og hins veg­ar tveir ung­ir og efni­leg­ir, Al­eks­andr Dom­alchuk og Hilm­ir Freyr Heim­is­son, upp­renn­andi meist­ar­ar.

Ingvar Þór og Björn Ívar spá því hik­laust skemmti­legu kvöldi í byrj­un októ­ber og ekki minnk­ar spenn­an 20. októ­ber þegar Hjörv­ar Steinn Grét­ars­son og Vign­ir Vatn­ar Stef­áns­son mæt­ast í viður­eign sem marg­ir bíða spennt­ir eft­ir.

Það kvöld eig­ast þeir einnig við Guðmund­ur Kjart­ans­son og Sím­on Þór­halls­son en sá síðar­nefndi komst inn á Íslands­meist­ara­mótið í gegn­um undan­keppn­ina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert